![]() Garðsstaðir 8 - 112 Reykjavík - Símar: 587-8202/863-2082 - Netfang: bolstbj@mi.is |
Um fyrirtækið |
| Bjarni Guðmundsson hóf nám í húsgagnabólstrun árið 1959 og lauk sveinsprófi árið 1964. Meistarabréf fékk Bjarni árið 1968 og það ár stofnaði hann fyrirtækið Bólstrun Bjarna og hefur það verið óslitið í rekstri síðan þá. |
| Bólstrun Bjarna hefur verið staðsett á eftirfarandi stöðum í gegnum árin: Kirkjuvegur 12 Selfoss 1968 - 1970 Höfðatún 10 Reykjavík 1970 - 1974 Laugarnesvegur 52 Reykjavík 1974 - 1981 Hólaberg 78 Reykjavík 1981 - 1999 Garðsstaðir 8 Reykjavík frá 1999 |
| Bóstrun Bjarna hefur um langan tíma unnið við antíkbólstrun, þ.e. gömlu stoppuðu húsgögnin, jafnframt önnur húsgögn.
Fyrirtækið hefur tekið að sér verkefni fyrir skóla, spítala, hótel, útgerðir, skrifstofur og félagsmiðstöðvar, svo eitthvað sé nefnt. Hjá Bólstrun Bjarna eru alltaf til prufubækur um leður og hinar ýmsu gerðir áklæða, en viðskiptavinir geta einnig lagt til efni sjálfir, allt eftir samkomulagi. |
| Endilega hafðu samband og fáðu upplýsingar um hvað við getum gert fyrir gömlu húsgögnin þín. |